top of page
Writer's pictureljonavarpid

Sævar Atli til Lyngby (STAÐFEST)

Bæði Leiknir og Lyngby hafa staðfest að okkar maður er orðinn leikmaður danska liðsins.



Sævar er með samning til 2024 og í frétt fotbolti.net má sjá viðtal við drenginn ásamt skemmtilegri kynningu félagsins á honum.


Að sjálfsögðu óskum við öll Sævari, fjölskyldu hans og félaginu okkar til hamingju með ráðahaginn. Virkilega spennandi tímar framundan og óneitanlega léttir að þurfa ekki að horfa á hann í öðru íslensku liði í bráð.


Fyrir utan að vera nú orðið uppáhaldslið allra Leiknismanna í útlöndum eru Lyngby með framúrskarandi samfélagsmiðlaumfjöllun svo við hvetjum alla til að fylgja þeim Sævari og Freysa á öllum þeirra miðlum.



31 views0 comments

Comments


bottom of page