top of page
Writer's pictureLjón

Lið 10. umferðar Pepsi-Max: Leiknir með 4 fulltrúa

Fótbolti.net tilkynnti í dag lið nýliðinnar 10. umferðar í Pepsi-Maxdeildinni. Það er aldrei leiðinlegt að skoða það eftir góðan leik hjá Leikni og er þetta skiptið engin undantekning.



Okkar menn dreifa sér um allan völlinn og Siggi Höskulds valinn þjálfari umferðarinnar í 3. sinn. Guy Smit ver markið í annað sinn og þeir Binni og Sævar Atli fá kallið í 3. sinn líka.


Við óskum okkar mönnum til hamingju með sigurinn í gær og minnum á að á morgun kemur inn funheit Kraftröðun á Leiknismönnum sem dómnefnd Leiknisljónanna velur. Þar er barist fyrir alvöru. Innbyrðis!



26 views0 comments

Comments


bottom of page