Heimsklassakokkur og grjótharður Leiknismaður! Gísli er okkar maður í veitingageiranum og við gleymum því aldrei þegar hann tók hlýlega á móti okkur í Eyjum sumarið 2015 eftir svaðilför frá Landeyjahöfn. Öðlingur sem gott er að eiga að í öldusjó og við skulum hafa hugfast að gjalda greiðan!
Hvað ertu að lesa? Um tíman og vatnið eftir Andra Snæ, skyldulesning fyrir alla!
Hvað ertu að horfa á (þættir)? Um þessar mundir ACT
Hvað ertu að horfa á (bíómyndir)? Horfði á Veggfóður í gær - það var smá súrt
Hvað ertu að hlusta á (tónlist)?: Nýplata Júníus Meyvant frábær sem og GDRN platan nýja.
Hvað ertu að hlusta á (podcast ef við á)?: Nei ha? Er í uppáhaldi...
Eitthvað annað sem þú gerir til að láta tímann líða?: Nóg að gera ….
Ertu með hlekk á stutt og skemmtilegt myndband á netinu til að létta lundina?: Þeir sem hafa verið í sóttkví og lokað á leikskólum finnst þetta líklega fyndið.
Ef þú gætir séð einhvern fótboltaleik úr fortíðinni aftur núna í fyrsta sinn. Hvaða leikur væri það?
Úrslitaleikurinn í meistaradeildinni 99’ (sjá stóðhestainnslagið hér)
Þú verður læstur í sóttkví næstu 30 daga með 5 manns sem þú mátt velja 1 úr hverjum flokki eftifarandi, lífs eða liðinn: Úff….
Hollywood stjarna: Morgan Freeman
Íþróttastjarna: Kobe Bryant
Tónlistamaður: John Lennon
Grínisti: Jim Carrey
Sögufræg persóna: Steve Jobs
Ef þú mættir bara borða eina tegund matar í 30 daga, hvað væri það og af hverju?:
Fiskrétti!
Hvernig nærðu að hreyfa þig án æfinga/líkamsræktarstöðva?:
Þegar það er brjálað að gera á vaktinni.
Einhver hvatningarorð/kveðjuorð fyrir önnur Leiknisljón um þessar mundir?:
Munum að styðja við lítil fyrirtæki og litla vinnustaði núna á meðan COVID19 herjar, þeir þurfa á þínum viðskiptum núna meira en fyrr.
Comments